Tuesday, August 24, 2004

Eftirminnilegast í Finnlandi - Eyjapæjurnar

Arna Björg: Loftdýnan og að labba inn á lokaathöfnina fyrir Ísland.

Anna Kristín: Loftdýnan og vera fremst á lokatónleikum Explosive.

Kristjana: Það sem mér finnst standa uppúr er hvað stelpurnar voru líflegar og skemmtilegar svo var þetta mjög lærdómsríkt.

Annika: Skemmtilegast var að dansa í Hip#Hop-inu og að sýna á lokahófinu.

Tanja Björg: Á Fiber-dýnunni og að sýna á lokahátíðinni.

Lilja Dröfn: Það var æðislegt að fá að labba inn á lokahátíðinni fyrir hönd Íslands og sýna. Explosive toppuðu svo allt um kvöldið! og margt fleira...

Elínborg: Mér fannst skemmtilegast í Team-Gym og að sýna og labba inn á lokahátíðinni. Svo var líka mjög flott að horfa á öll atriðin í sýningunum.

Barbara: Mér fannst allt alveg æðislegt en það sem stóð uppúr var hvað maður kynntist mikið af fólki og að fá að sýna á lokaathöfninni.

Kristín Rannveig: Mér fannst skemmtilegast á lokahófinu.

Thelma Rut: Mér fannst skemmtilegast hvað við kynntumst mörgum, svo var líka geðveikt á lokakvöldinu og á kvöldin.

Kristjana Sif: Mér fannst skemmtilegtast á lokahófinu og Galakvöldinu og Ég, Arna og Ása sáum geðveikt sætan strák frá Portúgal.

Ása Guðrún: Mér fannst skemmtilegast þegar þessar skemmtanir voru á kvöldin og líka á lokakvöldinu, það var gegt fjör.

Stefanía: Mér fannst allt skemmtilegt nema Han Moo Doo. Get varla gert upp á milli, það var allt svo gaman en lokaathöfnin stóð uppúr. Svo kynntumst við líka fullt af frábærum krökkum.

Jóhanna Björk: Mér fannst mjög gaman á lokakvöldinu.

Guðrún: Mér fannst skemmtileg á lokakvöldinu.

Díanna: Vá hvað það er búið að vera gaman. Mér fannst skemmtilegast hvað stelpurnar voru jákvæðar, duglegar og skemmtilegar.Ég er stolt af þeim öllum.

Hanna: Þetta var alveg ógleymanleg ferð, mér fannst skemmtilegast hvað íslensku stelpurnar fengu mikið hrós og frá mörgum.