Lokakvöldið
Lokahátíðin stóð upp úr hjá flestum, þátttaka í sýningaratriðum, inngangan á eftir íslenska fánanum og ballið á eftir. Allar stelpurnar frá Eyjum tóku þátt í sýningaratriði frá Hópfimleikasmiðjunni en tvær tóku einnig þátt í HipHop atriðinu. Á lokakvöldinu voru atriði frá nær öllum vinnusmiðjum og völdu þátttakendur hvaða smiðjur þeir sýndu með.
Það voru alls 20 stúlkur frá Íslandi sem tóku þátt í að ganga inn á eftir íslenska fánanum og var áberandi hvað þær voru líflegar og rifu upp stemminguna. Enda fengu þær sérstakt hrós frá skipuleggjanda lokahátíðarinnar fyrir. Einnig komu margir frá öðrum löndum og hrósuðu íslenska hópnum fyrir hvað þær væru indælar, líflegar og skemmtilegar. Enda náðu stelpurnar mjög vel saman og stóðu saman sem ein heild frá Íslandi og voru hvarvetna fyrirmynd og til sóma. Við erum svo stoltar af þeim.
Heimferðin gekk vel, allir þreyttir þegar komið var í Leifsstöð og efast ég ekki um að flestar hafi sofnað snemma í gærkvöldi.
Í rútunni og flugvélinni á leiðinni heim gekk stílabók á milli allra íslensku stelpnanna, þjálfara og fararstjóra og skrifuðu þær niður hvað þeim þótti skemmtilegast og eftirminnilegast. Það munum við síðan setja inn á síðuna á næstu dögum.
Íslensku stelpurnar ætla líka að halda sambandi en þær fengu MSN hjá öllum svo það verður leikur einn.
TAKK TAKK fyrir frábæra ferð og ykkur sem fylgdust með heima takk líka og gaman að sjá hvað þær fengu margar heimsóknir.

1 Comments:
hallo aus germany, bist du die nette betreuerin, die ich auf der eurogym kennengelernt habe?
strippi74@yahoo.com
schoenen gruss
joerg
Post a Comment
<< Home